Erlent

Talsmaður mannræningja handtekinn

Hamas-samtökin handtóku í gær talsmann hópsins sem heldur fréttamanninum Alan Johnston í gíslingu. Vonast er til að nú verði auðveldara að fá Johnston lausan úr haldi með fangaskiptum.

Her islams, sem er hópurinn sem hefur Johnston í haldi, hefur hins vegar hótað því að birta opinber skjöl sem myndu komu sér illa fyrir Hamas, ef talsmanni þeirra, Abu Khatab al-Maqdisi, yrði ekki sleppt.

Hamas-liðar segjast vita hvar Johnston er í haldi en þeir hafi ekki reynt að frelsa hann af ótta við að það ylli Johnston skaða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×