Arsenal mokgræðir - Wenger fær 9 milljarða 24. september 2007 10:58 Wenger getur verslað grimmt ef honum sýnist svo NordicPhotos/GettyImages
Breskir fjölmiðlar greina frá því í dag að Arsene Wenger knattspyrnustjóri Arsenal muni fá hátt í 70 milljónir punda (9 milljarða króna) til leikmannakaupa á næstunni í kjölfar frétta af góðri afkomu í rekstri félagsins. Arsenal kallar sig nú ríkasta félagið á Englandi eftir að velta félagsins á síðasta fjárhagsári fór yfir 200 milljarða punda. Rekstrarhagnaður félagsins jókst gríðarlega og er nú rúmlega 50 milljónir punda. Arsene Wenger notaði ekki allt það fé sem honum var fengið til leikmannakaupa í sumar og því má eiga von á að Arsenal láti til sín taka í leikmannamálum í framtíðinni. "Ég tel að við séum í góðri stöðu," sagði Keith Edelman, framkvæmdastjóri Arsenal. "Frammistaða Wenger og liðsins alls hefur verið framúrskarandi það sem af er leiktíðinni og þá eru tíðindi af fjármálum félagsins ekki til að skemma það. Við höfum sterka stöðu fjárhagslega núna og því ætti Wenger að geta keypt þá leikmenn sem hann vill í framtíðinni. Við áttum 70 milljónir punda eftir fjárhagsárið og Wenger vill eyða því - má hann gera það," sagði Edelman. Það er helst flutningur Arsenal á Emirates-völlinn sem hefur skapað þessa gríðarlegu tekjuaukningu, en sagt er að félagið raki inn rúmar 3 milljónir punda í kassann á hverjum einasta heimaleik - tvöfalt það sem kom inn á gamla Highbury. Þess ber að geta að 16 milljón punda sala félagsins á Thierry Henry er ekki inni í þessum tölum, en ljóst er að Arsenal er nú komið á par með félögum eins og Real Madrid hvað varðar veltu og hefur það skotið félögum eins og Chelsea og Manchester United aftur fyrir sig.
Enski boltinn Mest lesið Lamine Yamal í vandræðum eftir afmælisveisluna sína Fótbolti Mistök að ráða ekki Betu og „er ekki talað hávært um Óla Kristjáns“ Fótbolti Már klessti á bakkann og HM er í hættu Sport Númerin í enska boltanum sem enginn má spila í Enski boltinn Sjö körfuboltamenn að fá íslenskan ríkisborgararétt Körfubolti Trump vildi ekki fara af verðlaunapallinum Fótbolti Sjáðu slagsmálin í lok úrslitaleiks HM félagsliða Fótbolti Fjögur lið sýnt LeBron áhuga Körfubolti Ætla að spila HM-leikina meira innanhúss næsta sumar Fótbolti Systkinin leikjahæst: „Heiður að taka fram úr alvöru goðsögnum“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Númerin í enska boltanum sem enginn má spila í Umboðsmenn Gyökeres lentir í London og hann sagður á leið í Arsenal Liverpool heiðraði minningu Jota og vann sigur Mínútu þögn fyrir fyrsta leik Liverpool síðan Jota féll frá Grealish líkast til á förum en elskar samt City „meira en allt“ Rio Ferdinand húðskammar Arsenal stuðningsmenn Fjarvera Gyökeres gera félagaskiptin hans „flóknari“ Onana frá næstu vikurnar Yfirgefur herbúðir Chelsea tveimur dögum fyrir úrslitaleik Bræðurnir heiðraðir í fyrsta æfingaleik Liverpool Forest íhugar lögsókn gegn Tottenham Jordan Henderson snýr aftur í ensku úrvalsdeildina Arsenal og Liverpool að slá heimsmetið United leitar að yfirmanni leikmannakaupa Man. Utd vill fá úrslitaleikinn á HM kvenna í fótbolta Arsenal eflir miðjuna enn frekar Stefán mætir Liverpool þrátt fyrir fráfall Jota Ók líklega á yfir 120 rétt fyrir slysið Besti ungi leikmaðurinn í Japan í fyrra kominn til Tottenham Everton búið að finna sinn Peter Crouch Amorim sagði nei og Man. United missti af 1,6 milljörðum Freyr missir lykilmann fyrir metfé Leikmenn Liverpool þurfa að mæta í vinnuna í dag Segir Arsenal vera að fá til sín „heila framtíðarinnar“ Óvissan tekur við hjá Hákoni Þrennubikar Man. United geymdur á Anfield Oasis tileinkaði Diogo Jota lag á fyrstu tónleikunum í sextán ár Umboðsmaður með Íslandstengingu sakaður um að nauðga konu í sex ár Taka tíuna af Rashford og segja honum að vera lengur í sumarfríi Slot um Jota: Vinur allra og átti draumasumar sem gerir þetta enn sorglegra Sjá meira