Erlent

Salmond kjörinn í forsæti

alex salmond Flokkur hans vill sjálfstæði Skotlands.
alex salmond Flokkur hans vill sjálfstæði Skotlands. MYND/AFP

Leiðtogi Skoska þjóðarflokksins, Alex Salmond, var í gær kjörinn „fyrsti ráðherra“ skoska heimastjórnarþingsins.

Salmond var kjörinn til að leiða minnihlutastjórn með 49 atkvæðum á móti 46 greiddum Verkamannaflokknum, sem hingað til hefur verið ráðandi flokkur í Skotlandi.

Í aðdraganda þingkosninganna lofuðu fulltrúar Skoska þjóðarflokksins að halda þjóðar­atkvæðagreiðslu um sjálfstæði Skotlands fyrir árið 2010. Aðrir flokkar á skoska þinginu styðja þó óbreytt tengsl við Bretland og því ólíklegt að af þjóðaratkvæði verði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×