Erlent

Ellefu manns handteknir

Sérsveit hryðjuverkavarnalögreglu í Frakklandi hefur handtekið ellefu manns sem grunaðir eru um aðild að al-Kaída-tengdum samtökum sem unnið hafa að því að fá herskáa múslima til liðs við skæruliða íslamista í Írak.

Níu manns voru handteknir í Toulouse og nágrenni í suðvesturhluta Frakklands á miðvikudag. Áður höfðu tveir menn verið handteknir á Orly-flugvelli við París, er þeir lentu þar eftir að hafa verið sendir til síns heima frá Sýrlandi.

Flestir hinna handteknu eru á þrítugsaldri, að sögn lögreglu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×