Erlent

Serbíuþing varar við sjálfstæði Kosovo

Hreyfing ungra Kosovo-Albana sem kallast „Sjálfsákvörðunarréttur“ minnist annars þeirra sem létust í mótmælunum.
Hreyfing ungra Kosovo-Albana sem kallast „Sjálfsákvörðunarréttur“ minnist annars þeirra sem létust í mótmælunum. MYND/AP

Forsætisráðherra Serbíu, Vojislav Kostunica, varaði í gær við því að ef Kosovo-hérað fengi sjálfstæði frá Serbíu gæfi það „hættulegt fordæmi“ og leiddi til „ofbeldis gagnvart lýðræðisþjóðum í Evrópu“.

Á þriðjudaginn hafnaði serbneska þingið með miklum meirihluta tillögu Sameinuðu þjóðanna um að Kosovo, þar sem Albanar eru 90 prósent íbúa, fengi stöðu ríkis undir alþjóðlegu eftirliti.

Þetta þykir skýrt merki þess að Serbía muni ekki fallast á málamiðlanir um Kosovo sem þýðir að Sameinuðu þjóðirnar munu líklega þurfa að þvinga fram lausn á deilunni um framtíð héraðsins. Martti Ahtisaari, höfundur tillögunnar, mun leggja hana fyrir Öryggisráðið í lok mars.

Áhyggjur eru yfir því að tillagan geti leitt til einhvers konar uppgjörs á milli Bandaríkjanna, sem styðja sjálfstæði Kosovo, og Rússlands, sem eru helstu bandamenn Serba en bæði ríkin hafa neitunarvald í Öryggisráðinu. Athisaari sagðist í gær ekki myndu draga úr því sem lagt er til í tillögunni til að komast hjá synjun Rússlands.

Tveir létust og tveir særðust alvarlega í átökum lögreglu og mótmælenda um helgina þegar þrjú þúsund Albanar brutust gegnum öryggishlið þegar þeir mótmæltu því að tillaga SÞ hljóðaði ekki upp á fullkomið fullveldi Kosovo.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×