Erlent

Spillir fyrir tengslum við Rússa

Eistneska þjóðþingið samþykkti í gær „Lög um bannaðar byggingar", en framfylgd þeirra mun þýða flutning á umdeildu minnismerki um sigur Rauða hersins í síðari heimsstyrjöld frá þeim áberandi stað sem það nú stendur á í miðborg Tallinn inn í kirkjugarð.

Reyndar boðaði Toomas Hendrik Ilves, forseti landsins, að hann myndi beita synjunarvaldi gegn lögunum, sem hann segir brjóta í bága við stjórnarskrána.

Lögin munu þrátt fyrir það vafalaust koma niður á tengslum Eistlands og Rússlands, enda hefur Rússlandsþing þegar samþykkt einróma ályktun þar sem Eistar eru eindregið varaðir við því að stíga þetta skref.

Minnismerkið sem um ræðir var sett upp árið 1947, en frá því að Eistar endurheimtu sjálfstæði sitt árið 1991 hefur það verið þyrnir í augum þeirra flestra - fyrir utan hinn fjölmenna rússneskumælandi minnihluta í landinu - enda þykir það stöðug áminning um þjáningarnar sem innlimun landsins í Sovétríkin kallaði yfir þjóðina.

Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, sagði samþykkt laganna „alvarleg mistök, guðspjöll sem ekki er hægt að sætta sig við í Evrópu nútímans".




Fleiri fréttir

Sjá meira


×