Meintur forsprakki hryðjuverka neitar sök 16. febrúar 2007 06:15 Á sakamannabekknum Það var þétt setinn bekkurinn í réttarsalnum í Madríd í gær. MYND/AP
Egypti, sem sakaður er um að vera einn af höfuðpaurum lestarsprengjuárásanna í Madríd í mars 2004 sem bönuðu 191 manni og slösuðu 1.800, hélt því fram við yfirheyrslu í gær, á fyrsta degi réttarhalda yfir 29 sakborningum í málinu, að hann hefði þar hvergi komið nærri. Rabei Osman tjáði dóminum að hann hefði „aldrei með nokkrum hætti tengst atburðunum sem áttu sér stað í Madríd,“ þrátt fyrir að ítalskir saksóknarar hafi hlerað símasamtal þar sem Osman stærir sig af því að árásirnar í Madríd hafi verið „hans verk“. Ströng öryggisgæsla setti mark á upphaf réttarhaldsins í Madríd í gær. Sakborningar eru flestir frá Marokkó en aðrir arabar með ýmis ríkisföng, spænskt þar á meðal. Osman var fyrstur í vitnastúkuna, en hann svaraði einungis spurningum verjanda síns. Tilræðin í Madríd eru mannskæðustu hryðjuverk sem rakin eru til öfgasinnaðra múslima sem framin hafa verið í Evrópu. Saksóknarar telja gerendur þá sem vildu hlýða kalli Osama bin Ladens að refsa skyldi þjóðum sem áttu aðild að innrásunum í Afganistan og Írak. Tíu sprengjur í bakpokum voru sprengdar með farsíma-fjarstýringu og voru í fjórum grenndarlestum troðfullum af fólki á leið til vinnu snemma að morgni 11. mars 2004. Sjötíu voru handteknir í rannsókninni, en tuttugu og níu ákærðir, sjö þeirra meintir höfuðpaurar. Gert er ráð fyrir að réttarhaldið taki marga mánuði.
Mest lesið Loka sundlaugum fram yfir helgi vegna kuldans Innlent Árásarmaðurinn á blótinu með langan brotaferil á bakinu Innlent Lindsay Graham hafi hellt sér yfir Frederiksen og sagt Trump geta tekið Grænland Erlent „Þetta hefði ekki þurft að fara svona“ Innlent Hvítt í kortunum og snjómokstursteymið í startholunum Innlent Snjókoman náði ekki yfir Hellisheiðina Veður Engin breyting þó veðmálakóngur sé einn eftir Innlent Deilt um kjör Wolt-sendla Viðskipti innlent Annar bíll mögulega í „samfloti“ þegar banaslysið varð Innlent Sáttur við að staða hans sé auglýst Innlent Fleiri fréttir Segir Trump setja ósanngjarnan þrýsting á Úkraínu Viðræður gengu ágætlega en ekkert fast í hendi Friðrik leggur land undir fót til að stappa stálinu í Grænlendinga Lindsay Graham hafi hellt sér yfir Frederiksen og sagt Trump geta tekið Grænland Bandarískir hermenn í Nígeríu Colbert bannað að birta viðtal við Demókrata Skutu eldflaugum á Hormuz-sund þegar viðræður hófust Reyna að stöðva ein átök og koma í veg fyrir önnur Mannréttindafrömuðurinn Jesse Jackson látinn Gamall sófi og múrsteinar komu upp um barnaníðing Viðræður Írana og Bandaríkjamanna að hefjast í Genf „Ég vil bara að þetta sé sanngjarnt. Að komið sé eins fram við alla“ Seldi Pokémon-spjald á yfir tvo milljarða Talinn hafa selt eiginkonuna til yfir 120 kaupenda í Pelicot-máli Svíþjóðar Fluttu kjarnakljúf með flugvél í fyrsta sinn „Einræðisherrann“ aðstoðaði við handtöku eftirlýsta ólympíufarans Ætla einnig að draga úr vopnakaupum frá Bandaríkjunum „Þú stöðvar Pútín ekki með kossum og blómum“ Manntjón meðal almennings í Úkraínu jókst um 26 prósent Obama gefur út yfirlýsingu um mögulega tilvist geimvera Fríska upp á kjarnorkumannvirki í laumi Drápu þúsundir í „fordæmalausri“ ofbeldisöldu Obama um apamyndbandið: Ákveðin „trúðasýning“ og skortur á sómakennd Telur Trump enn girnast Grænland Veiktist er hann reyndi að afsanna Havana-heilkennið Eitrað fyrir Navalní með froskaeitri „Því sterkari sem við erum, því raunhæfari verður friður“ Tekur við formannsembættinu í skugga Epstein-tengsla Senda flaggskip breska flotans á norðurslóðir Mildari tónn en sama innihaldið: Sagði Evrópu „hlekkjaða af sektarkennd og skömm“ Sjá meira