Erlent

Ekkert spurst til Steve Fossett

Steve Fossett varð heimsfrægur þegar hann fyrstur manna flaug viðstöðulaust í kringum jörðina í loftbelg árið 2002.
Steve Fossett varð heimsfrægur þegar hann fyrstur manna flaug viðstöðulaust í kringum jörðina í loftbelg árið 2002. MYND/AFP

Björgunarsveitarmenn leita enn að ævintýramanninum Steve Fosset sem hefur verið saknað frá því á mánudaginn. Leitarsvæðið var í dag stækkað í annað sinn á tveimur sólarhringum. Nú er talið líklegt að Fossett hafi náð að fljúga mun lengra en í fyrstu var áætlað.

Steve Fossett hefur verið saknað síðan hann tók á loft á eins hreyfils vél sinni frá flugvelli í Nevada í Bandaríkjunum á mánudaginn. Fossett var ekki í fjarskiptasambandi á meðan hann var á lofti og ekki með fyrirliggjandi flugáætlun. Vélin sem hann var á hefur nægt eldsneyti til að vera á lofti í fjóra til fimm klukkustundir.

Björgunarsveitir hafa leita Fosset úr lofti og á landi. Um 25 flugvélar hafa tekið þátt í leitinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×