Enski boltinn

Lofar að koma Englandi aftur á toppinn

Capello ætlar að læra ensku á einum mánuði
Capello ætlar að læra ensku á einum mánuði AFP

Fabio Capello var í dag vígður formlega inn í starf landsliðsþjálfara Englendinga. Hann lofar að koma landsliðinu aftur í hóp þeirra bestu og ætlar að vera búinn að læra ensku þegar hann hittir leikmenn sína í fyrsta sinn í næsta mánuði.

Hinn 61 árs gamli Ítali tekur formlega við starfi sínu þann 7. janúar næstkomandi og hann sagðist í dag hlakka mikið til að takast á við þessa áskorun.

"Mig hefur lengi langað í þetta starf og ég veit fullvel að því fylgja gríðarlegar kröfur. Fyrsta verkefni mitt sem landsliðsþjálfara verður að hitta leikmennina og stjórana í úrvalsdeildinni. England er með frábært lið og getur farið beint á toppinn," sagði Capello, en notaðist við túlk á blaðamannafundinum í dag.

"Ég er viss um að þegar ég hitti strákana í næsta mánuði, muni ég tala fína ensku. Það er að mínu mati mjög mikilvægt að geta talað við þá á ensku og ég mun leggja hart að mér á hverjum degi að læra málið," sagði Capello. Hann telur enska landsliðið hafa spilað langt undir getu undanfarin ár.

"Ég ætla ekki að reyna að skilja hvað hefur komið fyrir hjá liðinu á síðustu stórmótum með því að tala við leikmennina og að mínu mati eiga leikmennirnir að vera stoltir af því að spila fyrir landsliðið og þar eiga þeir að spila eins vel og þeir gera með félagsliðum sínum," sagði sá ítalski.

Hann segist einnig ætla að breyta þjálfunaraðferðum sínum nokkuð í ljósi þess að hann er nú að stýra landsliði í fyrsta skipti á ferlinum.

"Það er allt annað mál og ég mun breyta hegðun minni nokkuð og það munu leikmennirnir gera líka. Ég hef alltaf átt frábært samstarf við menn eins og Wenger og Ferguson - sem og með spænsku þjálfurunum Benitez og Ramos - og það verður ekkert vandamál að vinna með þeim."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×