Gengið frá ráðningunni í dag Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 14. desember 2007 09:14 Fabio Capello, verðandi landsliðsþjálfari Englands. Nordic Photos / Getty Images
Enska knattspyrnusambandið mun halda áfram viðræðum sínum við Fabio Capello en stjórn sambandsins samþykkti ráðningu hans í gær. Aðeins á eftir að ganga frá fáeinum smáatriðum en ekki er talið að það muni koma í veg fyrir að Capello verði næsti landsliðsþjálfari Englands. Samningur hans nær til fjögurra og hálfs árs og er talinn tryggja Capello allt frá 500 til 750 milljóna króna í árslaun. Líklegt er að Capello verði formlega kynntur fyrir fjölmiðlum sem nýr landsliðsþjálfari á mánudaginn næstkomandi. Capello hefur undanfarið starfað hjá ítalskri sjónvarpsstöð og vill hún halda honum í starfi fram yfir úrslitakeppni EM 2008 en talið er að enska knattspyrnusambandið vilji að hann hætti þeim störfum um næstu áramót. Talsmaður enska knattspyrnusambandsins sagði í gær að stjórnin væri samþykk ráðningu Capello svo lengi sem aðilar myndu ná saman í samningaviðræðum sínum. Talið er að Capello vilji fá þrjá eða fjóra Ítali sér við hlið og er einn þeirra Franco Baldini sem hefur lengi starfað sem aðstoðarmaður hans. Aðrir sem hafa áður starfað með Capello er þjálfarinn Italo Galbiati, þolþjálfarinn Massimo Neri og markvarðaþjálfarinn Franco Tancredi. Áður hefur verið greint frá því að Björgólfur Guðmundsson vilji ráða Baldini sem yfirmann íþróttamála hjá West Ham en Brasilíumaðurinn Leonardo hefur einnig verið orðaður við þá stöðu. Þá verður einnig enskur þjálfari ráðinn í teymi Capello og er talið líklegast að Stuart Pearce verði fyrir valinu þar.
Mest lesið Segist „hafa dáið fjórum sinnum“ og er nánast óþekkjanlegur í dag Sport Síðasti séns á að vinna milljónir Fótbolti Hneykslast á kostnaði við kveðjuveislu Þóris og Lio Handbolti Þegar náttúran kallar í miðjum klíðum Sport Stefán mætir Liverpool þrátt fyrir fráfall Jota Enski boltinn Danska þjóðin í áfalli: „Verra en okkar versta martröð“ Sport Sex hafa ekkert spilað á EM Fótbolti Ajax riftir samningi Jordans Henderson Fótbolti EM í dag: Of langt gengið að kalla mig nautheimskan Fótbolti Fær ekki heimsmet sitt viðurkennt: „Þetta er kjánalegt“ Sport Fleiri fréttir Arsenal eflir miðjuna enn frekar Stefán mætir Liverpool þrátt fyrir fráfall Jota Ók líklega á yfir 120 rétt fyrir slysið Besti ungi leikmaðurinn í Japan í fyrra kominn til Tottenham Everton búið að finna sinn Peter Crouch Amorim sagði nei og Man. United missti af 1,6 milljörðum Freyr missir lykilmann fyrir metfé Leikmenn Liverpool þurfa að mæta í vinnuna í dag Segir Arsenal vera að fá til sín „heila framtíðarinnar“ Óvissan tekur við hjá Hákoni Þrennubikar Man. United geymdur á Anfield Oasis tileinkaði Diogo Jota lag á fyrstu tónleikunum í sextán ár Umboðsmaður með Íslandstengingu sakaður um að nauðga konu í sex ár Taka tíuna af Rashford og segja honum að vera lengur í sumarfríi Slot um Jota: Vinur allra og átti draumasumar sem gerir þetta enn sorglegra Michael Edwards og Richard Hughes senda frá sér yfirlýsingu vegna Jota Allt sem við vitum um banaslys Diogo Jota Yfirlýsing frá Liverpool: „Ólýsanlegur missir“ Borgaði bara ungmennaliðinu laun og nú má allt aðalliðið fara frítt Leikmaðurinn sem Liverpool ætlar að selja í sumar valinn bestur á EM Forest var búið að kaupa landsliðsmann en hann vildi ekki koma Leikmenn í enska þurfa nú að fara í viðtal þegar þeir koma af velli Brentford hafnaði tilboði Manchester United Liverpool semur við fyrrum liðsfélaga Stefáns Teits Heldur ekki áfram með Leicester Kerkez orðinn leikmaður Liverpool Stefán Teitur og félagar auglýsa Tik Tok stjörnur Liverpool strákurinn hetjan þegar Englendingar fóru í úrslitaleikinn Lallana leggur skóna á hilluna Guardiola sýndi takta á ströndinni með leikmönnum sínum Sjá meira