Það á að taka menn eins og Diouf úr umferð 4. desember 2007 14:43 El Hadji Diouf, leikmaður Bolton NordicPhotos/GettyImages
Fyrrum úrvalsdeildardómarinn Jeff Winter segir að enska knattspyrnusambandið ætti að breyta reglum sínum svo hægt sé að taka menn eins og El Hadji Diouf hjá Bolton úr umferð ef þeir gera sig sekir um hættulegar og glórulausar tæklingar. Diouf vakti reiði stuðningsmanna Liverpool á sunnudaginn þegar hann fékk aðeins gult spjald fyrir grófa tæklingu sína á Alvaro Arbeloa. Aganefndin hefði geta refsað Diouf fyrir tæklinguna, en samkvæmt reglum getur hún ekki þyngt refsingu hans af því dómarinn sá atvikið og gaf Diouf gult spjald. Jeff Winter segir í samtali við Sun að taka verði á svona ljótum brotum áður en einhver slasast alvarlega. "Þetta endar með því að einhver fótbrotnar eða örkumlast fyrir lífstíð eftir tæklingu frá Diouf eða einhverjum öðrum og svona ruddaskap verður að eyða út úr boltanum. Ég vil ekki taka neitt frá ákafa leikmanna, en þetta eru líkamsárásir og það er sorglegt að aganefndin skuli ekki geta tekið á þessu. Diouf fékk t.a.m. bara gult spjald en hefði klárlega átt að fá rautt," sagði Winter, sem dæmdi sinn síðasta leik á Englandi þegar hann flautaði bikarúrslitaleikinn árið 2004. "Það er ótækt að tæklingar eins og þessi hjá Diouf og tækling Stephen Hunt (hjá Reading á móti Manchester City vikuna áður) séu að eiga sér stað á vellinum og að mínu mati á að dæma svona menn í sex leikja bann -frekar en þriggja," sagði dómarinn fyrrverandi.
Enski boltinn Mest lesið Rasísk ummæli þingmanns um Mbappé harðlega gagnrýnd Fótbolti Rann til á skilti og spilar ekki meira á HM Fótbolti Maður dagsins á HM: Atvinnulaus hetja Noregs hætti við handbolta og skíði Fótbolti FIFA segir Belga ekki hafa rétt til að áfrýja Fótbolti Yfirlýsing UEFA: Óskiljanleg ákvörðun sem grefur undan trúverðugleika HM Fótbolti Merino hryggði Ronaldo í hinsta dansinum Fótbolti Infantino gefur út yfirlýsingu vegna afskipta Trumps Fótbolti Trump um símtalið til Infantino: „Ég fékk þá til að gera þetta“ Fótbolti Sepp Blatter: „Rauðum spjöldum er ekki snúið við með pólitískum símtölum“ Fótbolti Leikmenn Mexíkó þurftu að skila lúxusúrunum Fótbolti Fleiri fréttir Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Fær himinhá laun hjá ungu félagi sem stefnir hátt Onana aftur að láni frá Man. Utd Manchester City þarf að slá met til að klófesta Anderson Real Madrid græddi milljarða á kaupum Liverpool Liverpool hafnaði tilboði í Curtis Jones Sonur Mark Hughes lést aðeins 38 ára gamall Hefja viðræður um kaup á Tonali Segir að Liverpool verði að berjast um titilinn á fyrsta ári Iraola Dagatalið í enska boltanum: Titilvörn Arsenal hefst gegn nýliðum Tottenham borgar háa upphæð fyrir varnarmann Brighton Tekur við Crystal Palace eftir frábært tímabil í Frakklandi Elta Manchester United allt næsta tímabil Sjá meira