Barton óttast ekki að lenda í grjótinu 3. desember 2007 14:31 Joey Barton hefur verið iðinn við að koma sér í vandræði innan sem utan vallar NordicPhotos/GettyImages
Joey Barton, leikmaður Newcastle, segist ekki óttast að þurfa að sitja í fangelsi ef hann verður sakfelldur fyrir líkamsárás á fyrrum liðsfélaga sinn hjá Manchester City. Barton hefur haldið fram sakleysi sínu eftir að Ousmane Dabo, fyrrum félagi hans hjá City, kærði hann fyrir líkamsárás eftir að þeir lentu í áflogum á æfingasvæði félagsins í vor. Réttarhöld í málinu hefjast í júní næsta sumar. "Ef maður á að fara í fangelsi fyrir að verja sig, verður maður víst að sætta sig við það. Mér er samt alveg sama. Ég er ekki hræddur, því ég hef ekki gert neitt af mér," sagði Barton í samtali við Inside Sport, sem er þáttur á vegum breska ríkissjónvarpsins. Barton gæti fengið allt að fimm ára fangelsi ef hann verður sakfelldur. "Ég sef ágætlega á nóttinni því ég veit að ég gerði ekkert af mér. Ég er ekki slæmur maður og ég er viss um að ef ég væri ekki knattspyrnumaður í úrvalsdeildinni - myndi enginn vera að velta sér upp úr því sem ég hef gert," sagði Barton og bætti við að orðspors síns vegna væri hann skotmark fjölmiðla. "Þetta er kannski mér að kenna af því ég hef komið þessu orðspori af stað. Það má samt ekki slátra mönnum sem eru að reyna að bæta sig og einn daginn mun ég segja frá öllu þessu í smáatriðum," sagði Barton.
Enski boltinn Mest lesið Rann til á skilti og spilar ekki meira á HM Fótbolti Maður dagsins á HM: Atvinnulaus hetja Noregs hætti við handbolta og skíði Fótbolti FIFA segir Belga ekki hafa rétt til að áfrýja Fótbolti Yfirlýsing UEFA: Óskiljanleg ákvörðun sem grefur undan trúverðugleika HM Fótbolti Rasísk ummæli þingmanns um Mbappé harðlega gagnrýnd Fótbolti Merino hryggði Ronaldo í hinsta dansinum Fótbolti Infantino gefur út yfirlýsingu vegna afskipta Trumps Fótbolti Trump um símtalið til Infantino: „Ég fékk þá til að gera þetta“ Fótbolti Sepp Blatter: „Rauðum spjöldum er ekki snúið við með pólitískum símtölum“ Fótbolti Leikmenn Mexíkó þurftu að skila lúxusúrunum Fótbolti Fleiri fréttir Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Fær himinhá laun hjá ungu félagi sem stefnir hátt Onana aftur að láni frá Man. Utd Manchester City þarf að slá met til að klófesta Anderson Real Madrid græddi milljarða á kaupum Liverpool Liverpool hafnaði tilboði í Curtis Jones Sonur Mark Hughes lést aðeins 38 ára gamall Hefja viðræður um kaup á Tonali Segir að Liverpool verði að berjast um titilinn á fyrsta ári Iraola Dagatalið í enska boltanum: Titilvörn Arsenal hefst gegn nýliðum Tottenham borgar háa upphæð fyrir varnarmann Brighton Tekur við Crystal Palace eftir frábært tímabil í Frakklandi Elta Manchester United allt næsta tímabil Sjá meira