Enski boltinn

Hutchings rekinn frá Wigan

NordicPhotos/GettyImages

Chris Hutchings var í dag rekinn úr starfi knattspyrnustjóra hjá enska úrvalsdeildarfélaginu Wigan eftir að liðið hafði tapað sex leikjum í röð í deildinni. Aðstoðarmaður hans Frank Barlow tekur við liðinu tímabundið og stýrir því gegn Tottenham á sunnudaginn.

Hutchings var ráðinn knattspyrnustjóri Wigan í maí eftir að Paul Jewell sagði starfi sínu lausu - en Hutchings var einmitt líka látinn taka við af Jewell hjá liði Bradford City árið 2000.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×