Ronaldo skaut United á toppinn 11. nóvember 2007 16:59 Cristiano Ronaldo var enn á skotskónum hjá United NordicPhotos/GettyImages
Cristiano Ronaldo skoraði bæði mörk Manchester United í dag þegar liðið skaust á topp ensku úrvalsdeildarinnar með verskulduðum sigri á Blackburn 2-0 á Old Trafford. Christopher Samba fékk ágætt færi til að koma gestunum í Blackburn yfir í dag en hafði ekki heppnina með sér þegar skot hans fór í þverslána á marki United. Cristiano Ronaldo skoraði hinsvegar mörkin tvö sem skildu að í dag. Annað með skalla og hitt með öruggri afgreiðslu. Hafi Blackburn ætlað sér að jafna leikinn eftir það, er ljóst að þær dvínuðu til muna þegar David Dunn var rekinn af velli með tvö gul spjöld í síðari hálfleiknum. Ronaldo er nú búinn að skora 26 mörk í 51 leik fyrir Portúgal og Manchester United á árinu 2007. United hefur nú þriggja stiga forystu á Arsenal á toppi deildarinnar, en Arsenal á tvo leiki til góða. Tottenham færði stjóranum Juande Ramos góðan 4-0 sigur á Wigan í fyrsta leik hans á heimavelli í deildinni síðan hann tók við af Martin Jol. Leikurinn var algjörlega eign Tottenham frá upphafi til enda og hefði liðið með öllu átt að skora miklu fleiri mörk. Jermaine Jenas fór mikinn hjá Tottenham og skoraði tvö mörk í dag, en fór illa með nokkur færi til að bæta við það. Aaron Lennon og varamaðurinn Darren Bent skoruðu hin mörkin gegn lánlausu liði Wigan, en það var Búlgarinn Dimitar Berbatov sem var maður vallarins og átti þátt í flestum mörkunum hjá Tottenham. Gary Megson þarf að bíða eitthvað lengur eftir sínum fyrsta sigri síðan hann tók við Bolton, en lið hans gerði markalaust jafntefli við Middlesbrough á heimavelli í dag. Bolton var betri aðilinn í leiknum og kom liðið vel stefnt til leiks eftir frábæran leik gegn Bayern í vikunni - en allt kom fyrir ekki.
Enski boltinn Mest lesið „Allt of margir leikmenn sem þurfa að stíga upp“ Handbolti Isak í hópnum í París Enski boltinn Sveindís fyrst til að hljóta verðlaun vestanhafs Fótbolti Fimm ensk lið í Meistaradeildinni á næsta ári Enski boltinn Úti er ævintýri hjá Völsungi Fótbolti Goðsögn fallin frá Fótbolti Bayern hafði betur í skemmtilegum leik Fótbolti Havertz hetjan í steindauðri skák Fótbolti „Mér finnst ég alltaf koma með orku í liðið“ Sport Keflvíkingur keppti í Squid Game Íslenski boltinn Fleiri fréttir Isak í hópnum í París Fimm ensk lið í Meistaradeildinni á næsta ári Manchester United nýtir fríið til að fara í æfingaferð til Írlands „Finnur fyrir metnaðinum og möguleikunum“ Sleppur við bann eftir að hafa hrint dómara: „Algjör vanvirðing“ Tekur skóna af hillunni fyrir gamlingjabolta á Englandi Bernardo Silva yfirgefur City: „Allar góðar sögur enda“ Van Dijk segir að Liverpool hafi gefist upp gegn City Hetja Leeds: „Þetta eru töfrar bikarsins“ Fá City eftir að hafa slegið Arsenal út Leeds í undanúrslit í fyrsta sinn í 39 ár eftir ótrúlega dramatík Skytturnar úr leik: Dýrlingarnir sýndu Arsenal enga miskunn Chelsea flaug áfram í undanúrslit Szoboszlai svekktur: „Hugarfarið var ekki nógu gott“ Haaland með þrennu þegar City rúllaði yfir Liverpool Vafasamur vítaspyrnudómur stöðvaði ekki toppliðið Mo Salah fékk ráð frá Steven Gerrard Isak gæti spilað á móti Man City um helgina og Salah er heill Enzo Fernandez verður í agabanni í næstu tveimur leikjum Chelsea Vill vera lengi hjá „stórliðinu“ Tottenham Hraunar yfir Enzo: „Farðu í burtu“ Manchester United ferðast um Norðurlöndin í sumar Isak fær að æfa með liðsfélögunum aftur Onana fær mun hærri laun ef Man. United kemst í Meistaradeildina Chelsea setti nýtt met í taprekstri Nýr stjóri Tottenham ekki velkominn hjá stuðningsmönnunum De Zerbi tekinn við Tottenham Heimsmeistara býðst að aðstoða De Zerbi Starf Howe í hættu De Zerbi opinn fyrir því að taka strax við Tottenham Sjá meira