Enski boltinn

Villa vann grannaslaginn í Birmingham

Ridgewell valdi sér slæman tíma til að skora sjálfsmark
Ridgewell valdi sér slæman tíma til að skora sjálfsmark NordicPhotos/GettyImages

Skallamark Gabriel Agbonlahor undir lokin tryggði Aston Villa nauman 2-1 sigur á grönnum sínum í Birmingham í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni.

Villa náði forystu í leiknum þegar fyrrum leikmaður liðsins, varnarmaðurinn Liem Ridgewell, varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark hjá Birmingham þegar fyrirgjöf Stilian Petrov hrökk af hnénu á honum og í netið.

Finninn Mikael Forssell jafnaði fyrir heimamenn með skalla af stuttu færi eftir sendingu frá Daniel De Ridder, en það var svo Agbonlahor sem skoraði sigurmarkið undir lokin.

Þetta var fyrsti sigur Villa á útivelli síðan í apríl í vor en það voru heimamenn sem voru sterkari aðilinn í leiknum í dag og geta nagað sig í handarbökin yfir tapinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×