Skrautlegur eigandi Newcastle 9. nóvember 2007 14:59 Mike Ashley í treyjunni góðu NordicPhotos/GettyImages
Eigandi Newcastle ætlar að mæta á grannaslag liðsins gegn Sunderland á útivelli á morgun eins og flesta leiki liðsins. Hann verður þó ekki í heiðursstúkunni eins og venja er með eigendur, heldur verður hann í stúkunni með stuðningsmönnum Newcastle. Auðkýfingurinn Mike Ashley eignaðist félagið endanlega í sumar og er umtalaður fyrir þær sakir að þrátt fyrir gríðarlega ásókn fjölmiðla er sama og ekkert vitað um hagi hans. Hann er þó þekktur fyrir að horfa alltaf á leiki Newcastle klæddur í treyju númer 17 - treyju Alan Smith. Ashley er sagður hrifinn af leikstíl og baráttu Smith á vellinum og vill að liðið taki sér hann til fyrirmyndar. Þegar það spurðist svo út að Ashley ætlaði að mæta á grannaslaginn í treyjunni eins og venja er, lýstu Sunderland menn yfir áhyggjum sínum af því að þetta gæti valdið fjaðrafoki meðal stuðningsmanna heimaliðsins. Eigandinn var fljótur að leysa þetta vandamál og situr á morgun fyrir aftan annað markið á meðal stuðningsmanna Newcastle sem fylgja liðinu í útileikinn. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem eigandinn dularfulli veldur fjaðrafoki með klæðaburði sínum, en fyrr á þessu ári var honum meinaður aðgangur að næturklúbbi í Newcastle af því hann var klæddur treyju liðsins. Einn af yfirmönnum staðarins þekkti hann og hleypti honum undir eins inn. Ashley þakkaði fyrir sig með því að bjóða öllum sem voru inni á klúbbnum í glas og "tippsaði" starfsfólkið með feitri upphæð. Staðurinn hefur síðan breytt reglum um klæðaburð og nú er öllum frjálst að mæta í fótboltatreyjum á klúbbinn - ef þeir eru eigendur viðkomandi félags. Ashley er einn efnaðasti maður Englands og keypti Newcastle fyrir um 134 milljónir punda, eða 17 milljarða króna. Hann varð ríkur á því að selja íþróttavörur - ekki ósvipaðar og Alan Smith-treyjuna góðu sem hann klæðist á leikjum Newcastle.
Enski boltinn Mest lesið Heimir gáttaður á fyrstu spurningu: „Aftur? Allt í lagi…“ Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Öskraði á sjálfan sig til að vekja sig Sport Ýtti við Jesus og fagnaði eins og Ronaldo Fótbolti Þurfum að vera óþolandi eins og Aron og Gylfi Fótbolti Daníel Tristan kallaður inn í A-landsliðið Fótbolti Sjáðu fund Arnars og Ísaks fyrir slaginn við Búlgaríu Fótbolti Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla Íslenski boltinn Álftanesi spáð sigri í Bónus-deild karla Körfubolti Kaup Messi á spænsku félagi staðfest Fótbolti Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Handbolti Fleiri fréttir City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Sjá meira