Enski boltinn

Eriksson vill vetrarfrí

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Sven-Göran vill vetrarfrí.
Sven-Göran vill vetrarfrí. Nordic Photos / Getty Images

Sven-Göran Eriksson hefur bæst í hóp þeirra sem hafa kallað eftir vetrarfríi í ensku úrvalsdeildinni.

Eriksson vill að félögin í Englandi fái stutt frí eftir þriðju umferð ensku bikarkeppninnar í janúar.

„Það væri gott fyrir landsliðin þegar þau fara í stórmótin og einnig gott fyrir félögin í Evrópu. Ég hef barist fyrir þessu í mörg ár. Það er of mikið af fótbolta og ekki nógu mikið af hléum."

„England er eina landið í Evrópu sem tekur sér ekki frí um miðbik mótsins. Það er mikilvægt að leikmenn fái frí í eina viku og eina viku til að undirbúa sig fyrir næsta leik."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×