Upphitun fyrir Arsenal - United 2. nóvember 2007 21:30 Risarnir mætast á morgun NordicPhotos/GettyImages
Stórleikur helgarinnar í enska boltanum er viðureign Arsenal og Manchester United á Emirates á morgun, en leikurinn verður að sjálfssögðu sýndur beint á Sýn 2 og hefst útsending klukkan 12:25. Hjá Arsenal eru allir heilir nema þeir Robin Van Persie og Philippe Senderos sem hafa verið frá í nokkurn tíma. Til greina kemur að þeir Eduardo og Gilberto fái að byrja leikinn á morgun. Manchester United fær þá Louis Saha og Michael Carrick aftur inn í hópinn eftir meiðsli, þar sem Saha er að jafna sig á hnémeiðslum og Carrick er kominn til æfinga á ný eftir meiðsli á olnboga. Hér fyrir neðan má lesa hvað stjórarnir sögðu fyrir leikinn. Arsene Wenger: "Þetta er risaleikur og allir vilja sjá hvaða lið er best í augnablikinu. Ég hef mikla trú á mínu liði og ég er viss um að við getum sett pressu á þá og unnið leikinn. Við viljum nýta þetta tækifæri til að koma okkur í vænlega stöðu á toppi deildarinnar og verðum að vera þolinmóðir og sterkir andlega, því ef kemur eitthvað óðagot á liðið er voðinn vís." Sir Alex Ferguson: "Þetta verður mikið taugastríð eins og stórleikir eru alltaf og ég á von á því að boðið verði upp á mikinn hraða. Það er allt of snemmt að segja til um hvaða lið eru sigurstranglegust í deildinni því í þessari deild getur maður tapað stigum á móti hvaða liði sem er. Við höfum verið að spila vel undanfarið líkt og Arsenal og því er þessi leikur sérstaklega áhugaverður. Hver sá sem á miða á leikinn hlýtur að hlakka mikið til hans," sagði Ferguson. Leikurinn á morgun verður viðureign tveggja sigursælustu liða í sögu ensku úrvalsdeildarinnar. Manchester United hefur unnið 375 leiki og fengið 1258 stig. Þá hefur liðið unnið níu meistaratitla. Arsenal hefur unnið 316 leiki, fengið 1107 stig og unnið þrjá titla. Liðið hefur ekki tapað leik í 17 deildarleikjum í röð sem er lengsta rispa án taps í deildinni. Manchester United hefur hinsvegar unnið flesta leiki allra í röð - átta.
Enski boltinn Mest lesið Heimir gáttaður á fyrstu spurningu: „Aftur? Allt í lagi…“ Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Öskraði á sjálfan sig til að vekja sig Sport Ýtti við Jesus og fagnaði eins og Ronaldo Fótbolti Þurfum að vera óþolandi eins og Aron og Gylfi Fótbolti Daníel Tristan kallaður inn í A-landsliðið Fótbolti Sjáðu fund Arnars og Ísaks fyrir slaginn við Búlgaríu Fótbolti Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla Íslenski boltinn Álftanesi spáð sigri í Bónus-deild karla Körfubolti Kaup Messi á spænsku félagi staðfest Fótbolti Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Handbolti Fleiri fréttir City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Sjá meira