Enski boltinn

Wenger ætlar sér sigur gegn United

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Arsene Wenger.
Arsene Wenger. Nordic Photos / Getty Images

Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, ætlar sér sigur í toppslag ensku úrvalsdeildarinnar gegn Manchester United á morgun.

Liðin eru jöfn á toppi deildarinnar eins og er en Arsenal er með betra markahlutfall.

„Þetta verður risastór leikur því bæði lið hafa staðið sig mjög vel,“ sagði Wenger. „Það vilja allir sjá hvaða lið er best um þessar mundir og ég held að sá þrýstingur sem liðsheildin skapar muni skila okkur sigrinum.“

Bæði lið hafa verið að spila glimrandi fallega knattspyrnu í haust og segir Wenger að það geri leikinn enn meira aðlaðandi.

„Fyrir nokkrum árum stóluðu bæði lið mikið á líkamlegan styrk. Nú er meiri áhersla lögð á teknísku hliðina.“

Hann segir að bæði Liverpool og Chelsea muni berjast um meistaratitilinn á Englandi við þessi lið. „Blackburn hefur einnig veirð að standa sig vel. En það er of snemmt til að segja til um þetta. Sá stöðugleiki sem bæði mitt lið og United hafa sýnt gæti reynst dýrmætur.“ 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×