Enski boltinn

Sanchez: Bjóst við erfiðum leik gegn Íslandi

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Lawrie Sanchez er nú stjóri Fulham.
Lawrie Sanchez er nú stjóri Fulham. Nordic Photos / Getty Images

Lawrie Sanchez tjáir sig í nýrri bók um tíma hans sem landsliðsþjálfari Norður-Írlands. Leikur Norður-Írlands og Íslands í Belfast spilar stórt hlutverk í bókinni.

Sanchez var landsliðsþjálfari Norður-Íra í þrjú og hálft ár. Undir hans stjórn vann liðið England á heimavelli í undankeppni HM 2006 og landið fór á hvolf í kjölfarið.

Það voru því miklar væntingar fyrir næstu undankeppni, fyrir EM 2008 sem nú stendur yfir, en fyrsti andstæðingur Norður-Íra voru Íslendingar á Windsor Park í Belfast.

Ísland vann leikinn, 3-0, og í kjölfarið fóru samskipti Sanchez við norður-írsku pressuna á versta veg. Hann sagði að það bil hafi aldrei verið brúað aftur.

„Ég vissi að leikurinn gegn Íslandi yrði mjög erfiður,“ segir Sanchez í bók sinni. „Íslenska liðið átti fleiri leikmenn í ensku úrvalsdeildinni og ég vissi hversu góðir þeir voru.“

Hann segir að því miður hafi blöðin í Norður-Írlandi afskrifað Ísland og að það hafi Eyjólfur Sverrisson þáverandi landsliðsþjálfari fært sér í nyt.

„Hann sagði: „Þið hafið séð hvað stendur í blöðunum. Þeir taka okkur greinilega ekki alvarlega. Nú skulum við sýna þeim hvað við getum.“ Þeir náðu svo að skora þrívegis í fyrri hálfleik en varnarleikur okkar var slakur.“

Sanchez segir fyrr í bókinni að fyrst hafi byrjað að halla undan fæti í samskiptum hans við fjölmiðlamenn þegar hann bannaði þeim að gista á sama hóteli og landsliðið væri á í ferðum liðsins.

Tapið gegn Íslandi hafi svo gert það að verkum að pressan tók Sanchez af lífi eftir leikinn.

Nokkrum dögum síðar mættu Norður-Írar Spánverjum og unnu frækinn sigur, 3-2, þökk sé þrennu David Healy. 

Sanchez mætti ekki á blaðamannafund eftir leikinn og var afar nálægt því að hætta. Hann ákvað að halda áfram eftir að hann fyrir gríðarmiklum stuðningi í þjóðfélaginu.

Hann segir einnig að það hafi verið erfiðasta ákvörðun sem hann hafi þurft að taka þegar hann ákvað að hætta sem landsliðsþjálfari til að taka endanlega við Fulham síðastliðið sumar.

Úrdráttur úr bókinni birtist hér í grein The Belfast Telegraph. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×