Enski boltinn

Diouf skiptir um skoðun

NordicPhotos/GettyImages

Vængmaðurinn El Hadji Diouf hjá Bolton er hættur við að hætta með landsliði Senegal og hefur gefið kost á sér í leik liðsins við Malí í París. Diouf sagðist í byrjun mánaðarins vera hættur með landsliðinu því hann hefði fengið nóg af viðvaningslegum vinnubrögðum knattspyrnusambandsins í heimalandinu.

Talið er að yfirlýsing Diouf á dögunum hafi orðið til þess að fjöldi manna í hæstu stöðum hafi sett sig í samband við sóknarmanninn skapheita og beðið hann að draga í land. Þar á meðal íþróttamálaráðherra Senegal, Issa Mbaye Samba.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×