Enski boltinn

Webb dæmir á laugardag

Elvar Geir Magnússon skrifar
Howard Webb sér um að dæma stærstu leiki Englands.
Howard Webb sér um að dæma stærstu leiki Englands.

„Bestu dómararnir fá bestu leikina," sagði talsmaður enska knattspyrnusambandsins þegar hann var spurður út í það hvers vegna Howard Webb ætti að dæma leik Arsenal og Manchester United næsta laugardag.

Það er skammt stórra högga á milli hjá Webb en hann dæmdi leik Liverpool og Arsenal síðasta sunnudag. Gagnrýnisraddir hafa verið uppi um að álagið sé of mikið á Webb og þá finnst mörgum skrýtið að hann dæmi hjá sama liðinu tvær helgar í röð.

„Webb er sá sem hefur sýnt bestu frammistöðuna af dómurum deildarinnar og því sjálfsagt að hann fái bestu leikina," sagði talsmaður enska knattspyrnusambandsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×