Enski boltinn

Watford styrkir stöðu sína

Elvar Geir Magnússon skrifar
Úr leiknum í kvöld.
Úr leiknum í kvöld.

Watford er með sex stiga forskot í ensku 1. deildinni eftir að hafa unnið 2-0 sigur á Crystal Palace á útivelli í kvöld. Crystal Palace er í slæmum málum í fallsæti í deildinni, situr í þriðja neðsta sæti með ellefu stig.

Þetta var eini leikur kvöldsins í deildinni. Marlon King og Tommy Smith skoruðu mörkin í leiknum sem sýndur var í beinni útsendingu á Sýn 2.

Watford hefur farið virkilega vel af stað í Coca Cola deildinni, er með 32 stig í efsta sætinu. Bristol City er í öðru sæti með 26 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×