Enski boltinn

Dowie orðaður við Bolton

Elvar Geir Magnússon skrifar

Bolton Wanderes er í leit að nýjum knattspyrnustjóra og þar hefur nafn Iain Dowie komið í umræðuna. Sammy Lee entist aðeins fjórtán leiki sem stjóri Bolton. Dowie stýrir í dag liði Coventry í ensku 1. deildinni.

Dowie segir það vissulega spennandi að snúa aftur í ensku úrvalsdeildina en hann stýrði áður Charlton eins og frægt er.

„Allir stjórar vilja stýra liði í ensku úrvalsdeildinni. En hugur minn er hjá Coventry, ég má ekki vera að spá í sögusögnum," sagði Dowie.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×