Enski boltinn

Coppell sér eftir breytingunum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Steve Coppell, stjóri Reading.
Steve Coppell, stjóri Reading. Nordic Photos / Getty Images

Ívar Ingimarsson og Brynjar Björn Gunnarsson voru ekki í byrjunarliði Reading og sér Steve Coppell, stjóri liðsins, eftir þeim breytingum sem hann gerði á liðinu.

Coppell vildi hvíla þá menn sem voru á ferð með landsliði sínu og voru bæði Ívar og Brynjar á fullu með íslenska landsliðinu í landsleikjafríinu.

„Ég fiktaði með liðið og afleiðingarnar voru deginum ljósari," sagði Coppell eftir leik. „Í hálfleik gerðum við ákveðnar breytingar og stóðum okkur mun betur þá."

Blackburn vann Reading í dag, 4-2, en komst í 3-0 forystu snemma í leiknum. Brynjar Björn Gunnarsson kom inn á í hálfleik en Ívar Ingimarsson sat allan tímann á varamannabekk Reading.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×