Enski boltinn

Gylfi æfir með Barnsley

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Gylfi í leik með Leeds.
Gylfi í leik með Leeds. Nordic Photos / Getty Images

Simon Davey, knattspyrnustjóri enska 1. deildarliðsins Barnsley, hefur boðið Gylfa Einarssyni til æfinga hjá félaginu.

Þetta kom fram á heimasíðu félagsins í gær. Gylfi hefur verið án félags frá loka ágústmánaðar þegar hann var leystur undan samningi hjá Leeds.

„Gylfi býr á svæðinu og þetta fyrirkomulag hentar báðum aðilum vel," sagði Davey.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×