Enski boltinn

Nani kemur Ferguson á óvart

Vængmaðurinn Nani hefur fengið að spila mikið fyrir United
Vængmaðurinn Nani hefur fengið að spila mikið fyrir United NordicPhotos/GettyImages

Sir Alex Ferguson segist vera mjög ánægður með framfarir hins tvítuga Nani síðan hann kom til Manchester United, en ekki var reiknað með því að Portúgalinn ungi fengi að spila mikið á sínu fyrsta tímabili í ensku úrvalsdeildinni.

"Drengurinn hefur ómælda hæfileika og við erum mjög ánægðir með hann. Það eru engin takmörk fyrir því hvað hann getur náð langt," sagði Ferguson, en Nani hefur komið við sögu í 11 af fyrstu 13 leikjum liðsins til þessa.

"Við sáum það fyrir okkur að Nani fengi að koma inn fyrir Ryan Giggs af og til en hann hefur fengið að spila mikið og þá fer maður að sjá hluti sem maður gat ekki séð fyrr en hann fór að spila með okkur. Hann er tildæmis enn fljótari en ég gerði mér grein fyrir og svo eru fyrirgjafir hans frábærar," sagði Ferguson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×