Enski boltinn

Jol tekur Wimbledon til fyrirmyndar

Jol notar Wimbledon stílinn til að reyna að krækja í stig í botnbaráttunni
Jol notar Wimbledon stílinn til að reyna að krækja í stig í botnbaráttunni NordicPhotos/GettyImages

Martin Jol stjóri Tottenham hefur viðurkennt að hafa að hluta tileinkað sér leikstíl "Óða Gengisins" hjá Wimbledon á miðjum níunda áratugnum.

Tottenham var með sigurinn í höndunum gegn Liverpool á Anfield um síðustu helgi en þar skoraði liðið tvö mörk úr gamla Wimbledon-skólanum - eftir langar sendingar fram völlinn.

"Menn töluðu um það að mörkin okkar gegn Liverpool hefðu minnt dálítið á mörkin hjá Wimbledon á árum áður og ég verð að viðurkenna að ég kallaði eftir því í hálfleik. Við þurftum að berjast eins og ljón og reyna að komast inn fyrir vörnina hjá þeim, svo ég sagði strákunum að spila Wimbledon-stílinn annað slagið," sagði Jol.

Óða Gengið hjá Wimbledon náði hátindi frægðar sinnar árið 1988 þegar liðið vann frækinn sigur á meisturum Liverpool í úrslitaleik enska bikarsins. Í þessu liði voru menn á borð við Dennis Wise, John Fashanu, Vinnie Jones og Lawrie Sanchez, núverandi þjálfari Fulham.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×