Upphitun fyrir leiki helgarinnar 5. október 2007 21:30 Fernando Torres á eftir að gera varnarmönnum Tottenham lífið leitt á sunnudaginn NordicPhotos/GettyImages
Leikjafyrirkomulagið á Englandi verður með nokkuð sérstökum hætti þessa helgina þar sem aðeins tveir leikir fara fram á morgun og átta á sunnudaginn. Einn áhugaverðasti leikurinn verður einvígi Liverpool og Tottenham á Anfield. Ensku liðin stóðu mörg hver í ströngu í Evrópukeppni í vikunni og það er Manchester United sem ríður á vaðið á morgun þegar liðið tekur á móti Wigan í hádegisleiknum. United hefur ekki verið á neinu sérstöku flugi undanfarið en þó hefur liðið unnið síðustu fimm deildarleiki sína og hefur ekki fengið á sig mark í neinum þeirra. Wigan hefur aldrei náð að sigra United frá stofnun úrvalsdeildarinnar. Síðari leikur morgundagsins er svo einvígi Aston Villa og West Ham, en Villa hefur unnið þrjá heimaleiki í röð í deildinni á meðan Íslendingaliðið hefur verið nokkuð óstöðugt í upphafi leiktíðar. Á sunnudaginn tekur Arsenal á móti Sunderland þar sem heimaliðið hefur unnið síðustu fimm viðureignir sínar gegn Sunderland í deildinni og hefur skorað að minnsta kosti þrjú mörk í þeim öllum. Arsenal sigur í toppsæti deildarinnar en Sunderland hefur ekki unnið nema tvo af síðustu 40 leikjum sínum á útivelli í úrvalsdeildinni. Reading tekur á móti Derby í athyglisverðum slag þar sem Íslendingaliðið reynir að rétta sinn hlut eftir ótrúlegt 7-4 tap gegn Portsmouth um síðustu helgi. Derby hefur heldur ekki byrjað glæsilega og hefur fengið á sig fimm mörk að meðaltali í síðustu þremur útileikjum sínum í deildinni. Rafa Benitez stjóri Liverpool getur státað af þeim góða árangri að hafa aldrei tapað fyrir Tottenham síðan hann kom til Englands. Liverpool hefur unnið þrjá síðustu leiki liðanna án þess að fá á sig mark og þá hefur Tottenham aðeins unnið einn af síðustu ellefu leikjum sínum gegn þeim rauðu í öllum keppnum. Bolton tekur á móti Chelsea og hefur liðið aðeins unnið einn af síðustu 13 deildarleikjum sínum gegn Chelsea. Bolton hefur aðeins einu sinni átt verri byrjun í úrvalsdeildinni en nú - það var árið 1995-96 þegar liðið fór lóðrétt niður í 1. deildina. Newcastle tekur á móti Everton og hefur ekki tapað í sex síðustu heimaleikjum sínum. Everton hefur skorað fjögur skallamörk og varnarmenn liðsins hafa skorað fjögur mörk í deildinni það sem af er - sem toppar öll lið í deildinni í þessum flokkum. Manchester City tekur á móti Middlesbrough á heimavelli, en City tókst ekki að vinna Boro í fyrsta sinn í úrvalsdeild fyrr en á síðustu leiktíð - eða í 14. viðureign liðanna síðan deildin var stofnuð. Blackburn tekur á móti Birmingham þar sem miðjumaðurinn umdeildi Robbie Savage hjá Blackburn mætir sínum gömlu félögum. Blackburn hefur skorað mark í öllum viðureignum sínum gegn Birmingham í úrvalsdeildinni, en Birmingham hefur aðeins skorað eitt mark í síðustu fjórum leikjum sínum í deildinni það sem af er tímabili. Loks tekur Fulham á móti Portsmouth, en báðir leikir liðanna á síðustu leiktíð enduðu með 1-1 jafntefli. Fulham hefur aldrei mistekist að skora á heimavelli gegn Portsmouth frá stofnun úrvalsdeildar.
Enski boltinn Mest lesið Norska landsliðið flúði hótelið sitt Fótbolti Haaland keypti uppstoppuð nagdýr á hótelherbergið Fótbolti Ingibjörg barnshafandi Fótbolti Ver afskipti Trumps og segir dómarann vafasaman Fótbolti Þingkonan ræðst aftur á Mbappé og eftirmyndir af honum brenndar Fótbolti Lionel Messi: „Ég var mjög reiður“ Fótbolti Stjarna Marokkó ekki með í kvöld Fótbolti Haaland orðinn stærri en Manchester City Enski boltinn Bara einn í flugvélinni heim af HM Sport Úkraínsk tennisstjarna gagnrýnir ákvörðun IOC: „Þetta er hræðilegt“ Sport Fleiri fréttir Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Fær himinhá laun hjá ungu félagi sem stefnir hátt Onana aftur að láni frá Man. Utd Sjá meira