Enski boltinn

Tottenham í riðlakeppnina

Keane bjargaði Tottenham frá tapi í dag
Keane bjargaði Tottenham frá tapi í dag NordicPhotos/GettyImages

Enska úrvalsdeildarliðið Tottenham tryggði sér í dag sæti í riðlakeppni Evrópukeppni félagsliða þegar liðið gerði 1-1 jafntefli við Anorthosis Famagusta frá Kýpur í síðari leik liðanna ytra.

Enska liðið vann heimaleikinn 6-1 á dögunum og fer því örugglega áfram í riðlakeppnina. Tottenham sýndi engin glæsitilþrif í leiknum í dag og það voru varamennirnir Robbie Keane og Gareth Bale sem redduðu jafnteflinu. Keane skoraði eftir sendingu frá hinum unga Bale og jafnaði leikinn eftir að heimamenn höfðu náð forystunni.

Jermain Defoe og Darren Bent voru í framlínu Tottenham í dag og fór sá fyrrnefndi mjög illa með aragrúa dauðafæra í leiknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×