Enski boltinn

Jaaskelainen á leið frá Bolton

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Jussi Jaaskelainen hefur verið hjá Bolton í tíu ár.
Jussi Jaaskelainen hefur verið hjá Bolton í tíu ár. Nordic Photos / Getty Images

Finnski markvörðurinn Jussi Jaaskelainen er á leið frá Bolton eftir því sem umboðsmaður hans segir.

Jaaskelainen er á lokaári samnings síns við Bolton og umboðsmaður hans, Peter Harrison, sagði við Daily Mail í dag að félagið hefði dregið boð sitt um nýjan samning til baka.

„Jussi hefði áhuga á að ganga til liðs við félag eins og Newcastle, sérstaklega þar sem Sam Allardyce var hans best knattspyrnustjóri hjá Bolton," sagði Harrison.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×