Enski boltinn

Howard kominn í markið hjá Everton

NordicPhotos/GettyImages

Leikur Everton og Middlesbrough í ensku úrvalsdeildinni hófst nú klukkan 15 og er þetta eini leikurinn í deildinni í dag. Tim Howard er kominn aftur í markið hjá Everton eftir meiðsli og þá er markahrókurinn Yakubu kominn aftur í framlínuna.

Leikurinn er sýndur beint á Sýn 2 og annað kvöld sýnir stöðin beint frá leik Tottenham og Aston Villa klukkan 19:00.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×