Berkovic hraunar yfir Avram Grant 25. september 2007 09:47 Berkovic er ekki hrifinn af ráðningu Avram Grant hjá Chelsea NordicPhotos/GettyImages
Fyrrum ísraelski landsliðsmaðurinn Eyal Berkovic sparaði ekki stóru orðin þegar hann var spurður út í ráðningu landa síns Avram Grant hjá Chelsea. Grant var maðurinn sem batt enda á landsliðsferil Berkovic á sínum tíma og leikmaðurinn er ekki búinn að gleyma því. "Mér býður við ráðningu Grant hjá Chelsea og mér fannst hún afar ósmekkleg. Maður gat séð það fyrir að Chelsea og Avram myndu moka undan besta stjóra í sögu félagsins og líklega einum mesta persónuleika í knattspyrnunni í dag. Ég veit hvernig Grant er og stundum þarf maður að hugsa um sjálfan sig," sagði Berkovic í samtali við Sun. Hann hélt áfram. "Vel gert, Grant. Þetta tókst hjá þér. Þú þarft ekki að vera besti stjóri í heimi til að ná árangri hjá Chelsea. Þú átt peninga og góða leikmenn og það eina sem þú þarft að gera til að ná árangri er að vera góður sálfræðingur. Ég er viss um að hann á eftir að ná árangri en það eina sem skyggir á það er að þín verður alltaf minnst sem mannsins sem ýtti Jose Mourinho úr starfi," sagði Berkovic. Hann er ekki búinn að gleyma hvernig var að vera leikmaður. "Ég man hvernig er að vera leikmaður og ég skil hvaða stöðu leikmenn Chelsea eru komnir í. Það er ekki eðlilegt að allt í einu sé búið að ráða mann í starfið sem er vinur eigandans - mann sem tekur við af einum besta stjóra í heimi. Þetta er ekki mjög faglega gert. Hvað haldið þið að þeir Lampard, Terry og Drogba séu að hugsa núna? Hver er þessi Avram? Þér tókst það herra Grant, gangi þér vel," sagði Berkovic, sem á sínum tíma lék m.a. með West Ham á Englandi.
Enski boltinn Mest lesið Norska landsliðið flúði hótelið sitt Fótbolti Hetjuleg barátta en þriggja marka tap í fyrsta Evrópuleik Ísfirðinga Fótbolti Haaland keypti uppstoppuð nagdýr á hótelherbergið Fótbolti Ingibjörg barnshafandi Fótbolti Ver afskipti Trumps og segir dómarann vafasaman Fótbolti Þingkonan ræðst aftur á Mbappé og eftirmyndir af honum brenndar Fótbolti Lionel Messi: „Ég var mjög reiður“ Fótbolti Stjarna Marokkó ekki með í kvöld Fótbolti Haaland orðinn stærri en Manchester City Enski boltinn Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Handbolti Fleiri fréttir Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Sjá meira