Kevin Garnett ætlar að sjá Arsenal 24. september 2007 14:55 Garnett hlakkar mikið til að sjá Arsenal leika við Sunderland NordicPhotos/GettyImages
Framherjinn Kevin Garnett, sem í sumar gekk í raðir Boston Celtics í NBA deildinni, hoppaði hæð sína af kæti þegar honum voru útvegaðir miðar á leik Arsenal og Sunderland í ensku úrvalsdeildinni í næsta mánuði. Garnett verður á Evróputúr með nýja NBA-liðinu sínu í byrjun næsta mánaðar og ætlar var víst yfir sig hrifinn þegar Doc Rivers þjálfari Boston sagði honum frá miðunum. "Sagðir þú Aaaaarsenal?" - sagði hann yfir sig hrifinn. Garnett er mikill íþróttaáhugamaður og fékk að spila hafnabolta með Boston Redsox-liðinu fyrir skömmu. Hann er ekki eini NBA-leikmaðurinn sem er yfirlýstur knattspyrnuáhugamaður því ekki er langt síðan Kobe Bryant hjá LA Lakers fór á æfingu hjá Barcelona á Spáni þegar hann var þar í sumarfríi. Þá gerði Wayne Rooney gott mót þegar hann mætti á leik með Boston Celtics í NBA deildinni og afrekaði að fá einn leikmanninn fljúgandi ofan á löppina á sér þar sem hann sat fast við völlinn. Boston-liðið verður tvær vikur í Evrópu í æfingabúðum á næstunni. Fyrri vikuna verður liðið á Ítalíu og þá síðari í Lundúnum, þar sem Garnett áformar að skella sér á völlinn. Það er hætt við því að fáir missi af Garnett ef hann mætir á Emirates, því það er eflaust ekki á hverjum degi sem 211 cm háir menn mæta á völlinn.
Enski boltinn Mest lesið Hleraði leikhlé Norðmanna Handbolti Gísli gagnrýnir fyrirkomulagið á EM Handbolti Styrkir til VÍK Sport „Einn besti leikur sem maður hefur séð svakalega lengi“ Handbolti Supercross Atlanta úrslit. Sport Stærð sigurs Íslands gegn Svíum veki upp spurningar Handbolti Nýjar upplýsingar um heilsufar Michaels Schumacher Formúla 1 Danir komnir í undanúrslit en Þjóðverjar þurfa stig gegn Frökkum Handbolti Landsliðsþjálfarinn bjargaði leikmanni Fylkis | Myndir Íslenski boltinn Ótrúleg saga Viggós rifjuð upp í erlendum miðlum Handbolti Fleiri fréttir Barry bjargaði stigi fyrir Everton Ekki gerst hjá Arsenal í átján ár Sjáðu draumamark Dorgu og öll hin í sigri United á Arsenal Varamaðurinn tryggði United sigur gegn Arsenal Aston Villa lifði af orrahríð fyrir norðan og náði Manchester City Hlín utan hóps er Lehmann kom að marki í fyrsta leik Estevao með mark og stoðsendingu gegn lánlausu Palace liði Sjáðu alla dramatíkina úr enska boltanum Van Dijk segir að það hafi „klárlega verið brotið á sér“ í sigurmarkinu „Sigurmark undir lokin er fullkomið fyrir okkur“ Liverpool-vandræðin halda áfram og Bournemouth með sigurmark í blálokin Stórbrotið sigurmark hjá Harry Wilson Haaland fékk smá hvíld í kærkomnum sigri City Hömruðu meðan járnið var heitt í sigri gegn Sunderland Sonur Wayne Rooney spilaði á Old Trafford Arsenal sagt vera að skoða kaup á Julián Álvarez í sumar Gæti farið frá Liverpool til Tottenham Íslenskir spéfuglar vöktu kátínu Spursara en reittu tvo til reiði Konaté syrgir föður sinn Van Dijk: Sýndi Slot vanvirðingu með þessari spurningu Alisha Lehmann verður nýr liðsfélagi Hlínar Þættir um Manchester United í anda „The Crown“ Leikmenn City endurgreiða stuðningsmönnum Óttast að Grealish verði lengi frá Xabi Alonso myndi segja nei við öllum núna nema Liverpool Bauð Paul Scholes heim til sín til að ræða málin Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Bestu mörkin: Sjáðu glæsilegan hjólhest gríska táningsins „Sumir ungir þjálfarar nú til dags eru hrokafullir“ Sjá meira