Curbishley óttast erlenda eigendur 21. september 2007 20:51 Alan Curbishley er ekki smeykur við að tjá sig NordicPhotos/GettyImages
Alan Curbishley, knattspyrnustjóri Íslendingaliðs West Ham, segist óttast síaukin afskipti erlendra eigenda af liðum sínum í ensku úrvalsdeildinni. Curbishley starfar sjálfur hjá erlendum eigendum - Íslendingunum Björgólfir Guðmundssyni og Eggerti Magnússyni. Curbishley lætur þessi orð falla skömmu eftir að breytingar voru gerðar í brúnni hjá West Ham þar sem Eggert Magnússon ætlar nú að skipta sér minna af daglegum rekstri félagsins. "Það er staðreynd að þeir menn sem eru að taka við félögum hér á Englandi eiga sér flestir enga sögu í knattspyrnunni í landinu. Doug Ellis hjá Aston Villa og fjölskyldan sem átti Liverpool voru t.d. fólk sem lifði og hrærðist í knattspyrnu alla tíð - þetta voru stuðningsmenn liðanna," sagði Curbishley. Hann segist gera sér fulla grein fyrir að þessar aðstæður sem hann lýsir eigi einmitt við hjá West Ham í dag. "Ég hef áhyggjur af því - og þá geri ég mér grein fyrir að þetta á líka við hjá West Ham - að þessir nýju eigendur sem skilja ekki fullkomlega hvernig hlutirnir ganga fyrir sig í knattspyrnunni eigi ef til vill erfitt með að sætta sig við að hlutirnir gangi ekki upp strax. Mér sýnist sem þolinmæði eigenda sé alltaf að verða minni og minni og pressan á að ná árangri sé alltaf að aukast," sagði Curbishley. Hann á ekki von á því að breytingarnar í stjórn West Ham muni þýða miklar breytingar á skipulagi hjá félaginu. "Það hefur ekki mikið breyst hjá okkur. Eggert verður enn í stjórninni og B.G. (Björgólfur Guðmundsson) mun verða meira með puttana í hlutunum," sagði Curbishley í samtali við Daily Mail.
Enski boltinn Mest lesið Skýtur á Salah: „Lætur þetta allt snúast um sig“ Enski boltinn „Ég sem faðir er ekkert eðlilega stoltur af honum“ Fótbolti Sprengja frá Salah: Gerður að blóraböggli og brostið samband við Slot Enski boltinn Svona verða Norris, Verstappen eða Piastri heimsmeistarar í dag Formúla 1 Útilokar ekki að koma heim Fótbolti Messi og Miami MLS-meistarar Fótbolti Skýrsla Ágústs: Ekki lengur reynslulausar Handbolti Alexander vann úrvalsdeildina: „Ég stefni á Ally Pally! Ég er ekki búinn hérna“ Sport Fyrrum eigandi Liverpool látinn Enski boltinn „Erfitt þegar þú færð á þig mörk án þess að fá á þig færi“ Enski boltinn Fleiri fréttir Fyrrum eigandi Liverpool látinn Skýtur á Salah: „Lætur þetta allt snúast um sig“ Sjáðu mörkin: Guimaraes beint úr horni, dramatík hjá Liverpool og öll hin Sprengja frá Salah: Gerður að blóraböggli og brostið samband við Slot „Erfitt þegar þú færð á þig mörk án þess að fá á þig færi“ Hádramatík í sex marka leik Aftur aflýst hjá Andra vegna bleytu Everton í fimmta sæti og langþráður sigur Spurs Varnarmenn City í stuði og aðeins tvö stig í Arsenal Þriðji í röð án sigurs hjá Chelsea Salah enn á bekknum Hádramatík í lokin á Villa Park Hagaði sér eins og MMA-bardagahetja í fótboltaleik Hislop með krabbamein Van Dijk um bekkjarsetu Salah: „Allir þurfa að standa sig“ Hvað þarf Chiesa eiginlega að gera til að fá fleiri mínútur hjá Liverpool? Sjáðu öll atvikin og ástæðu þess að baulað var á Old Trafford „Okkur sjálfum að kenna“ United missti frá sér sigurinn í lokin Liverpool minnist Diogo Jota með tilfinningaþrungnum hætti „Eina leiðin til að lifa af“ Sjáðu brot af því besta frá öllum í hundrað marka klúbbnum Þegar Ronaldo tætti West Ham í sig Sjáðu mörkin: Það fyrsta tekið af Wirtz, Merino heitur og Leeds vann Chelsea Andri Lucas búinn að skora meira en pabbi sinn Klæðnaður Mo Salah á bekknum vakti athygli „Ég er mjög stoltur af mínum leikmönnum“ Wirtz fékk ekki markið skráð á sig og nýliðarnir fögnuðu á Anfield Chelsea fór stigalaust heim af Elland Road Aston Villa með endurkomu í miklum markaleik Sjá meira