Laug báðar ömmur sínar í gröfina 14. september 2007 15:26 Stephen Ireland fær mjúkan pakka frá ömmum sínum um næstu jól NordicPhotos/GettyImages
Miðjumaðurinn Stephen Ireland hjá Manchester City og írska landsliðinu hefur beðist auðmjúklega afsökunar á að hafa dregið þjóð sína og knattspyrnufélag á asnaeyrunum svo dögum skipti í vikunni. Ireland laug því að báðar ömmur hans væru dauðar til að sleppa frá Slóvakíu þar sem hann var með landsliðinu. Ireland flaug frá Slóvakíu og heim til Írlands með einkaflugvél í boði írska knattspyrnusambandsins á sunnudaginn eftir að hafa sagt forráðamönnum liðsins að amma hans hefði dáið. Það var þó unnusta Ireland sem ýtti úr vör með lygasögurnar eftir að hún missti fóstur. Kærastan sagði Ireland að hún þyrfti á honum að halda eftir áfallið og ráðlagði honum að segja ömmusöguna til að sleppa frá Slóvakíu og heim til Írlands. Knattspyrnusambandið grennslaðist fyrir um málið og komst að því að móðuramma hans á Írlandi var sprelllifandi. Ireland var beðinn um að svara fyrir þetta á mánudagsmorguninn, en hann laug því þá að það hefði verið föðuramma hans í London sem hefði dáið. Forráðamenn Manchester City komust svo að því á þriðjudeginum að föðuramman var jafnlifandi og móðuramman og því ákvað Ireland að lokum að segja sannleikann. Hann hefur nú beðist auðmjúklega afsökunar á öllu saman og á eflaust eftir að þurfa að svara fyrir þessar skrautlegu sögur í næsta fjölskylduboði. "Ég geri mér grein fyrir því að þetta var ósmekklegt hjá mér og mig langar að biðja alla sem að málinu komu afsökunar. Mér þykir fyrir þessu og geri mér grein fyrir því að orð mín hafa eflaust valdið særindum og hugarangri hjá mörgum," sagði Ireland.
Enski boltinn Mest lesið „Einn af mínum bestu leikjum á tímabilinu“ Körfubolti „Svona hefur þetta verið allt mitt líf“ Enski boltinn Stjarnan - Tindastóll 97-103 | Stólarnir knúðu fram oddaleik Körfubolti „Hefði viljað fá tvær vítaspyrnur“ Fótbolti Antonelli hélt uppteknum hætti Formúla 1 Sinner tók fram úr goðsögnum með glæstum sigri Sport Vinicius kom í veg fyrir að Barcelona yrði sófameistari Fótbolti „Sem betur fer slapp þetta“ Fótbolti ÍBV - Breiðablik 1-2 | Hægt og hugmyndasnautt Íslenski boltinn „Vitum að þessir gæjar búa yfir gríðarlegum gæðum“ Fótbolti Fleiri fréttir „Svona hefur þetta verið allt mitt líf“ Tottenham kom sér upp úr fallsæti Ferguson fluttur á spítala Rúlluðu Palace upp og komnir í Evrópusæti Mainoo tryggði sigur eftir að United gaf tvö mörk Isak aftur meiddur Sjáðu öll mörkin úr enska boltanum: Gyökeres og Saka í banastuði fyrir Skytturnar Hélt á lofti og lofaði Newcastle að Sádarnir myndu ekki selja Benóný lauk deildinni á marki og fer í umspilið Skytturnar með sex stiga forystu á toppnum Tap West Ham gefur Tottenham von Hollywood-liðið missir af umspili og Ipswich í ensku úrvalsdeildina Guardiola léttur: „Slakir þjálfarar og skítaleikmenn“ Laglegt hjá Leeds sem forðast fall Færði tíðindi af Salah á blaðamannafundi í morgun Mainoo áfram í Manchester næstu árin Parker hættur hjá Burnley | Tekur Gerrard við? Salah ekki sagt sitt síðasta hjá Liverpool Mudryk áfrýjaði fjögurra ára banni Sú sigursælasta setur skóna á hilluna Guardiola sá langþráða endurkomu Benonýs Breka Gremja í City-mönnum sem spila þrjá leiki á sjö dögum Ipswich sigri frá sæti í ensku úrvalsdeildinni Stones rifar seglin hjá City Knattspyrnukona missti fóstur á æfingu: „Þeir björguðu líklega lífi mínu“ Fernandes nálgast stoðsendingametið eftir sigur United Fá leyfi til að leika sér í fríinu Fékk sér tebolla með Ratcliffe Frá út leiktíðina og missir af HM Fernández kom Chelsea í bikarúrslit Sjá meira