Savage: Ég fer til tunglsins ef Wales fer á HM 11. september 2007 09:39 Robbie Savage er ekki hrifinn af verkum John Toshack NordicPhotos/GettyImages
Miðjumaðurinn Robbie Savage hjá Blackburn og fyrrum landsliðsmaður Wales, segir að landsliðinu hafi farið aftur um mörg ár undir stjórn John Toshack landsliðsþjálfara. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Savage ræðst að þjálfaranum enda eru litlir kærleikar þeirra á milli. Vonir Wales um að komast á EM 2008 voru endanlega úr sögunni á laugardaginn þegar liðið lá 2-0 á heimavelli gegn Þjóðverjum. Aðeins 25,000 áhorfendur sáu leikinn í Cardiff og útlit fyrir að Wales þurfi að bíða lengur eftir að komast á stórmót. "John Toshack sagði okkur að dæma sig eftir undankeppni EM og sannleikurinn er sá að landsliðinu hefur farið mikið aftur. Ég vona að hann byrji ekki að tuða um það að við getum komist til Suður-Afríku (á HM 2010) - af því það væri þvættingur, það vita allir. Það eru meiri líkur á því að ég geti flogið farþegaþotu til tunglsins með bundið fyrir augun en að Toshack komi Wales á HM," sagði Savage. "Landsliðið kemst ekki á HM undir hans stjórn og sem stuðningsmaður landsliðsins er ég gríðarlega vonsvikinn með slakt gengi undanfarið. Það segir sína sögu hvað fáir mættu að styðja við bakið á landsliðinu gegn einu besta liði heims um helgina. Það er ekki langt síðan við lögðum Þjóðverja í vináttuleik í Cardiff fyrir framan 75,000 áhorfendur og það segir okkur svart á hvítu hvað við höfum dottið niður á við," sagði Savage fúll, en hann hefur ekki spilað fyrir landsliðið síðan árið 2005.
Enski boltinn Mest lesið „Ég er rasisti og ég gerði þetta viljandi“ Sport Infantino hættir við allt saman Fótbolti „Ég mun að minnsta kosti sofa vel í nótt“ Fótbolti Uppgjörið: ÍBV - Fram 1-2 | Framarar unnu Þjóðhátíðarleikinn Íslenski boltinn „Þetta er mikið áfall fyrir okkur“ Íslenski boltinn JP Morgan veldur fjaðrafoki í annað sinn Fótbolti Konurnar fyrsta fórnarlambið eftir útspil Infantino Fótbolti Ný heimildarmynd um banaslys Ólympíumeistarans Sport Sagði nei við Love Island og vann svo silfur á Samveldisleikunum Sport Vinícius á förum? Fótbolti Fleiri fréttir „Versta ákvörðun sem ég hef tekið að styðja Tottenham“ Fyrsta mark Tonali í sigri á Chelsea Redknapp: Tottenham er að hegða sér eins og stórklúbbur í sumar Newcastle borgar meira en einn og hálfan milljarð til að fá Jaissle Chelsea sleppur við stigafrádrátt en fær háa sekt Leikmenn Liverpool rifust um fyrirliðabandið Arbeloa sækir fyrrum lærisveina úr akademíu Real Madrid Telur að Vinícius Júnior sé að spila með Arsenal Chelsea kaupir Lacroix fyrir rúmlega fimmtíu milljónir punda Jaissle líklegastur til að taka við af Howe Howe hættur hjá Newcastle Rio Ngumoah tryggði Liverpool sigur Welbeck verður sá fyrsti í fjögur ár Enska deildin mun taka hart á platmeiðslum markvarða Dyche segir að Heiðar hafi verið sá lélegasti á æfingum Liverpool undirbýr viðræður við PSG um Barcola Varamarkvörður City verður einn dýrasti markvörður sögunnar „Iraola spilar neðri deildar fótbolta á háu stigi“ Fíklar í fráhvörfum: „Öskra þarna á einn átta ára að gefa boltann“ Hausverkur fyrir Iraola Alonso vill tvo hálffertuga í liðið Segir að Defoe hafi skrópað á æfingu í fyrsta stjórastarfinu Chiesa elskar Liverpool og vonast eftir „nýju upphafi“ Stjóri Tottenham segir óánægðum leikmönnum að yfirgefa félagið Fjórir táningar í fyrsta byrjunarliði Iraola hjá Liverpool Arsenal sagt hafa áhuga á því að kaupa Vinícius Júnior United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Entist skammt í þjálfarastólnum Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Sjá meira