Hjónabandið breytti Beckham 5. september 2007 16:50 NordicPhotos/GettyImages
Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, segir að David Beckham hafi breyst til hins verra þegar hann giftist kryddpíunni Victoriu árið 1999. Hann segir Beckham hafa verið atvinnumann fram í fingurgóma áður en hann tileinkaði sér stjörnulífið. "David var aldrei til vandræða fyrr en hann gifti sig. Hann átti það til að vera á æfingum fram á nótt og var frábær ungur maður. Það var erfitt fyrir hann að taka skrefið inn í að verða ofurstjarna og eftir að hann gifti sig var líf hans aldrei hið sama. Hann er orðinn svo frægur núna að knattspyrnan er orðin aukaatriði. Beckham var alltaf í besta mögulega formi en það breyttist eftir að hann fór í poppið með konunni. Það var eins og hann breyttist í aðra manneskju," sagði Ferguson. Gamli þjálfarinn hans er heldur ekki á því að Beckham nái að breyta knattspyrnunni í Bandaríkjunum. "Stór nöfn í knattspyrnunni hafa áður farið til Bandaríkjanna og nægir þar að nefna menn eins og Pele, Cryuff og Beckenbauer. Þessir menn náðu ekki að breyta knattspyrnunni þar til góða og því á ég erfitt með að sjá að þetta verði eitthvað öðruvísi með David. Það er nú einu sinni þannig að bestu leikmennirnir sem koma upp í Bandaríkjunum fara allir úr landi til að spila eins og í mörgum öðrum löndum," sagði Ferguson og benti á að landafræðin gerði Bandaríkjamönnum líka erfitt fyrir. "Svo er Ameríka líka svo stór að það gerir stuðningsmönnum það ókleift að fylgja liðum sínum í útileiki. Það getur því aldrei myndast jafn góð stemming í Bandaríkjunum og t.d. á Englandi," sagði Ferguson. "Menn gætu auðvitað skipt landinu upp í riðla, en það eru bara ekki nógu mörg lið til að gera það."
Enski boltinn Mest lesið Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Enski boltinn Fyrrverandi landsliðsmaður drukknaði Fótbolti Er hik í vítaspyrnum að láta leikmenn klúðra þeim? Fótbolti Evrópu-Emil: Æðislegt að setja þrjú mörk í Evrópu Fótbolti María að gera Þóri að afa Fótbolti „Sérstakur leikur fyrir mig, því ég spila á Englandi og fæddist á Englandi“ Fótbolti Meiðsli, veikindi og leikbann í herbúðum Englands Fótbolti Mbappé bætti fyrir vítaklúðrið og Frakkar brunuðu í undanúrslitin Fótbolti Lamine Yamal segir „ótrúlegt“ að sjá Messi enn vera að skína á HM Fótbolti Tvær brauðsneiðar reyndust uppskriftin að fimm mörkum Fótbolti Fleiri fréttir Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Sjá meira