Erlent

Gaus í Etnu í gær

Gos hófst í eldfjallinu Etnu á Sikiley í gærkvöldi. Hraun streymdi niður í óbyggðan dal, en íbúum neðar í hlíðum fjallsins stafaði engin hætta af gosinu. Aska barst yfir nærliggjandi þorp, og flugvellinum í Kataníu í nágrenni fjallsins var lokað af öryggiástæðum en að öðru leyti var ekki gripið til sérstakra ráðstafana vegna eldgossins.  Eldgos af þessari stærðargráðu eru algeng í Etnu og valda þau sjaldan miklu tjóni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×