Ensk knattspyrna er í bráðri hættu 4. september 2007 11:11 Trevor Brooking hefur miklar áhyggjur af framtíð enska landsliðsins NordicPhotos/GettyImages
Sir Trevor Brooking segir að straumur erlendra leikmanna inn í ensku úrvalsdeildina sé að grafa undan framtíðarmöguleikum enska landsliðsins. Brooking fer fyrir nefnd sem stýrir knattspyrnuuppbyggingu á Englandi og segir að tilfinnanlega skorti breidd í lykilstöðum í enskri knattspyrnu. Brooking spilaði sjálfur 47 landsleiki fyrir Englands hönd á sínum tíma og hann var áhyggjufullur í spjalli við breskja ríkissjónvarpið. "Tölfræðin sýnir að mikil ógn steðjar að enska landsliðinu og við þurfum að fara að hafa áhyggjur af því. Ég vil ekki að enska landsliðið þurfi að sætta sig við það hlutskipti eftir áratug að þurfa að gera sér að góðu að ná á stórmót," sagði Brooking. Tölurnar sem hann vísar í eru vissulega afgerandi, en í rannsókn sem breska sjónvarpið lét gera kom í ljós að fjöldi útlendinga í ensku úrvalsdeildinni hefur margfaldast á síðustu árum. Fyrstu keppnishelgina í úrvalsdeildinni keppnistímabilið 1992-1993 voru 76% byrjunarliðsmanna í ensku liðunum heimamenn. Í fyrstu umferðinni í ár voru Englendingar hinsvegar aðeins 37% byrjunarliðsmanna. Árið 1992 voru á sama hátt aðeins 10% leikmanna í byrjunarliðunum fyrstu helgina utan Bretlandseyja, en í umferðinni fyrir þremur vikum var sú tala komin upp í 56%. Hingað til hafa verið skoruð 118 mörk í ensku úrvalsdeildinni og þar af hafa aðeins 9 þeirra verið skoruð af aðeins þeim 7 ensku framherjum sem eru í byrjunarliðum. "Á síðustu leiktíð voru aðeins um 40% leikmanna í byrjunarliðunum í ensku úrvalsdeildinni heimamenn og á miðað við hvað liðin hafa verið dugleg að kaupa erlenda leikmenn þyrfti ekki að koma á óvart þó enskir leikmenn yrðu fljótlega aðeins þriðjungur af byrjunarliðsmönnum. Hvar eru þá tækifærin fyrir ensku leikmennina á aldrinum 17-21 árs? Sjáið bara heimsmeistara Ítala sem dæmi. Ég held að um 70% leikmanna þar séu heimamenn. Sömu sögu má segja um Frakka, Spánverja og Hollendinga. Þeir eru á svipuðum slóðum og Ítalirnir hvað þetta varðar. Þjóðverjarnir eru með mikið af útlendingum í sinni deild, en þó ekki nærri eins marga og við. Þetta er mikið áhyggjuefni og ég óttast að eftir 10 ár verðum við í miklu basli við að tryggja okkur sæti á stórmótum með þessu áframhaldi," sagði Brooking.
Enski boltinn Mest lesið Heimir gáttaður á fyrstu spurningu: „Aftur? Allt í lagi…“ Fótbolti Valskonur fallnar í fyrsta sinn Íslenski boltinn Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ Enski boltinn Björguðu sér og sendu bæði Víking og Val niður um deild Íslenski boltinn Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Enski boltinn Bakgarðsáskorunin: Öskraði á sjálfan sig til að vekja sig Sport Ýtti við Jesus og fagnaði eins og Ronaldo Fótbolti Þurfum að vera óþolandi eins og Aron og Gylfi Fótbolti „Menn mega ekki vera of miklir töffarar“ Fótbolti Daníel Tristan kallaður inn í A-landsliðið Fótbolti Fleiri fréttir Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Sjá meira