Erlent

Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna undirbýr brotthvarf hersins

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Hillary Clinton, fyrrverandi forsetafrú og væntanlegur forseti?
Hillary Clinton, fyrrverandi forsetafrú og væntanlegur forseti? Mynd/ AP

Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna í Pentagon undirbýr nú áætlun um brotthvarf bandarískra hersveita frá Írak. Þetta kemur fram í bréfi sem Robert Gates varnarmálaráðherra skrifaði Hillary Clinton, öldungardeildarþingmanni og forsetaframbjóðanda. Í bréfinu segist hann vera að vinna að áformunum. Hann myndi jafnframt vinna með hernefnd öldungadeildarinnar að því að halda þingmönnum upplýstum um gang áætlunarinnar.

 

Bryan Whitman, talsmaður varnarmálaráðuneytisins, sagði að ráðuneytið hugðist ekki kalla hersveitirnar heim í einum hvelli. Áætlanirnar myndu taka mið af skoðunum Bush Bandaríkjaforseta og stjórnar hans um að hluti hersveitanna yrðu áfram í Írak um hríð. Því mætti segja að verið væri að undirbúa áætlun um að draga úr herliðinu í Írak frekar en heimkvaðningu hersins í heild sinni.

Síðastliðið vor voru 30 þúsund hermenn sendir til Íraks, til viðbótar við þá 127 þúsund sem voru þar fyrir. Þeim er ætlað að aðstoða írösk stjórnvöld við að ná stöðugleika í landinu.

Daglega ferst fjöldi fólks í sprengingum í Írak. Í gær fórust að minnsta kosti 25 manns í Bagdad, höfuðborg landsins, þegar bílsprengja sprakk á þar á fjölförnu verslunarsvæði. Sama dag fórust fimm bandarískir hermenn, fjórir í Diyalahéraðinu og einn í Bagdad.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×