Erlent

Færri hlynntir sjálfsmorðsárásum

Færri múslimar styðja nú sjálfsmorðsárasir og ofbeldi gegn saklausum borgurum vegna trúarbragða en árið 2002. Einungis í Palestínu virðist stuðningur við þessar aðferðir enn almennur, en aðeins sex prósent palestínumanna segja sjálfsmorðárásir ekki eiga rétt á sér. Þetta kemur fram í könnuninni Pew Global Attitudes sem gerð var í fjörtíu og sjö löndum um lífsskoðanir fólks og viðhorf til þjóðfélaganna sem það býr í. Hún sýnir einnig minnkandi stuðning í múslimaheiminum við Osama Bin Laden, leiðtoga Al Kaída.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×