Erlent

Shambo skal felldur

Líf hins heilaga nauts Shambo hangir enn á bláþræði en áfrýjunardómstóll hefur úrskurðað að það eigi að slátra honum.

Shambo, sem býr í hindúaklaustri í Wales, greindist fyrir skömmu með berkla og fyrirskipuðu heilbrigðisyfirvöld að hann skyldi felldur. Hindúar um heim allan mótmæltu þessu, og ákvað undirréttur að lífi Shambo skyldi þyrmt. Áfrýjunardómstóllinn var á annarri skoðun og ákvarðaði að hann skyldi felldur. Munkarnir hyggjast áfrýja málinu til hæstaréttar. Þeir segja málið snúast um trúfrelsi sitt, en samkvæmt hindúatrú harðbannað er að slátra nautgripum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×