Erlent

Erdogan vinnur stórsigur í tyrknesku þingkosningunum

Stuðningsmenn Erdogans fagna úrslitunum í gær.
Stuðningsmenn Erdogans fagna úrslitunum í gær. MYND/AFP

AK-flokkurinn, stjórnmálaflokkur Recep Erdogan forsætisráðherra Tyrklands vann sigur í tyrknesku þingkonsingunum í gær. Flokkurinn fék 47 prósent allra atkvæða og bætti við sig 13 prósentum frá síðustu kosningum.

Alls vann flokkurinn því 341 sæti á þingi af þeim 550 sem eru í boði. Flokkur þjóðernissinn, CHP, hlaut 21 prósent atkvæði og hægriflokkurinn MHP 14 prósent atkvæða. Þá komust nokkri óháðir þingmenn Kúrda á þing en þar hafa þeir ekki átt fulltrúa í nærri áratug.

Í ræðu eftir að úrslit kosninganna lágu fyrir hét Erdogan því að halda áfram að vinna að umbótum í landinu og koma Tyrklandi inn í Evrópusambandið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×