Enski boltinn

Barton missir af upphafi leiktíðar með Newcastle

NordicPhotos/GettyImages

Miðjumaðurinn Joey Barton hjá Newcastle mun missa af upphafi leiktíðar í ensku úrvalsdeildinni í næsta mánuði eftir að hann brákaði bein í fæti sínum í æfingaleik gegn Carlisle í gær. Barton mun fara í aðgerð fljótlega og verður væntanlega frá keppni í að minnsta kosti sex vikur.

Barton gekk í raðir Newcastle frá Manchester City fyrir 5,8 milljónir punda í júní eftir stormasama síðustu leiktíð. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×