Enski boltinn

Berbatov tryggði Tottenham sigur

Dimitar Berbatov skoraði sigurmark Tottenham gegn Kaiser Chiefs
Dimitar Berbatov skoraði sigurmark Tottenham gegn Kaiser Chiefs NordicPhotos/GettyImages

Búlgarski framherjinn Dimitar Berbatov skoraði sigurmark Tottenham í dag þegar liðið lagði Kaiser Chiefs frá Suður-Afríku 2-1 í fyrsta leik sínum á æfingaferðalagi þar í landi. Robbie Keane kom Tottenham yfir í leiknum í fyrri hálfleik, en heimamenn jöfnuðu í upphafi þess síðari. Það var svo Berbatov sem skoraði sigurmarkið af stuttu færi eftir góðan undirbúining varamannsins Darren Bent þegar hálftími lifði leiks.

Leikurinn var þó ekki eintóm gleði fyrir Lundúnaliðið, því franski varnarmaðurinn Younes Kaboul þurfti að fara meiddur af velli á fyrstu mínútu leiksins eftir að sparkað var í andlitið á honum. Þetta var fyrsti leikur Frakkans fyrir Tottenham, en hann kom til félagsins frá Auxere fyrir skömmu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×