Enski boltinn

Ferguson reiknar með að landa Tevez

AFP

Sir Alex Ferguson knattspyrnustjóri Manchester United viðurkennir að hann hafi enga varaáætlun ef ekkert verður af fyrirhuguðum kaupum félagsins á framherjanum Carlos Tevez frá West Ham. Málið er í mikilli flækju enn sem komið er, en Ferguson treystir á að það leysist í tæka tíð.

"Ég er viss um að Tevez skrifar undir samning við okkur og ég get alveg beðið eftir því. Ef sú staða kemur hinsvegar upp að ekkert verði af því - hef ég ekki gert neinar ráðstafanir til að landa okkur öðrum framherja enn sem komið er," sagði stjórinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×