Enski boltinn

Wright-Phillips orðaður við Tottenham

Shaun Wright-Phillips
Shaun Wright-Phillips NordicPhotos/GettyImages

Nokkur bresku blaðanna halda því fram í dag að kantmaðurinn Shaun Wright-Phillips hjá Chelsea sé á leið til Tottenham fyrir um 12-14 milljónir punda í vikunni. Sagt er að viðræður milli félaganna séu komnar langt á veg, en af þessum kaupum yrði hjá Tottenham myndi það þýða að félagið væri búið að eyða hátt í 50 milljónum punda til leikmannakaupa í sumar.

Tottenham hefur líka verið orðað við kantmanninn Martin Petrov hjá Atletico Madrid fyrir 8 milljónir punda. Þá segir Daly Mail að Tottenham sé að íhuga að selja West Ham framherjann Jermain Defoe fyrir 14 milljónir punda, en hann lék með West Ham áður en hann fór til Tottenham á sínum tíma. Blaðið fullyrðir að Tottenham hafi þegar neitað 11 milljón punda tilboði West Ham í Defoe.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×