Enski boltinn

Geovanni til Manchester City

Geovanni fagnar marki gegn Manchester United í Meistaradeildinni
Geovanni fagnar marki gegn Manchester United í Meistaradeildinni NordicPhotos/GettyImages
Manchester City gekk í dag frá samningi við brasilíska miðjumanninn Geovanni sem var með lausa samninga hjá Cruzeiro í heimalandi sínu. Geovanni þessi er 27 ára gamall og lék áður með Barcelona og Benfica. Hann á að baki fimm landsleiki og hefur skrifað undir eins árs samning við City. Hann er þriðji maðurinn sem Sven-Göran Eriksson kaupir til félagsins á einni viku auk þeirra Rolando Bianchi og Gelson Fernandes.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×