Erlent

Þrír láta lífið í sjálfsmorðssprengjuárás í Pakistan

Abdul Rashid Ghazi, næstæðsti klerkur Rauðu moskunnar í Íslamabad, var borinn til grafar í vikunni.
Abdul Rashid Ghazi, næstæðsti klerkur Rauðu moskunnar í Íslamabad, var borinn til grafar í vikunni. MYND/AFP

Þrír lögreglumenn létu lífið í sjálfsmorðssprengjuárás í norðvesturhluta Pakistans í gær. Enginn hefur enn lýst ábyrgð á verknaðinum en talið er líklegt að um hefndaraðgerðir sé að ræða vegna árásar stjórnarhersins á Rauðu moskuna í Íslamabad fyrr í vikunni.

Bæði talibanar og al-Kaída hafa boðað hefndaraðgerðir vegna árásarinnar.

Sprengjunni var komið fyrir í bifreið sem sprakk í loft upp þegar lögreglan stoppaði ökumann við venjubendið vegaeftirlit.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×